MSN Home  |  My MSN  |  Hotmail
Sign in to Windows Live ID Web Search:   
go to MSNGroups 
Groups Home  |  My Groups  |  Language  |  Help  
 
Icelandic Association of UtahIcelandicAssociationofUtah@groups.msn.com 
  
What's New
  Join Now
  HOME  
  IAU  
  Icelandic Memorial  
  Monument in Vestmannaeyjar, Iceland  
  The Road to Zion  
  Road to Zion in Icelandic  
  Utah Emigrant of the Month  
  Icelandic Links  
  Volunteers  
  Emigration Centre  
  Glaumbær Folk Museum  
  Pictures  
  Calendar  
  Fire on Ice the book  
  Fire on Ice Documentary on DVD  
  Pönnukökurs  
  Icelanders Gather to Utah  
  Iceland Days 2008  
  
  
  Tools  
 

 

Fyrstu vesturfararnir - sýning í Þjóðmenningarhúsinu

Sýningin Fyrirheitna landið var opnuð í Þjóðmenningarhúsinu 7. maí sl. en hún segir frá ferðum fyrstu Íslendinganna, sem settust að í Vesturheimi. Þetta voru mormónar sem settust að í Utah fyrir 150 árum. Heilmikil dagskrá var við opnunina en Davíð Oddsson utanríkisráðherra opnaði sýninguna með ávarpi.

Þessir fyrstu Íslendingar höfðu látið skírast til mormónakirkjunnar, sem boðaði að nýja Zion væri í Utah-ríki í Bandaríkjunum. "Sýningin Fyrirheitna landið varpar ljósi á trúarlegan grunn mormónanna, rekur ferð Þórðar Diðrikssonar (1828-1894) um haf og land og gefur innsýn í það samfélag sem Íslendingarnir byggðu og urðu hluti af ytra," segir í tilkynningu frá Þjóðmenningarhúsinu.

Jóhanna Bergmann er leiðsögumaður Þjóðmenningarhússins. "Ég hef gaman af því að opna sýninguna á þessum tímamótum þegar 150 ár eru liðin frá því að fyrstu Íslendingarnir settust að í Vesturheimi. Það er talsverð athygli í þjóðfélaginu á þessar vesturferðir og það er áhugi á málefninu. Það er gaman að því að merkja þennan tíma vesturferðanna sem hefur ekki verið í kastljósinu," segir hún. Sagan sem er rakin með sýningunni hefst um 1850 en vesturferðirnar eru oftast tengdar tímabilinu 1870-1914. "Þetta er tuttugu árum áður en Kanadaferðirnar komu til. Þarna eru líka aðrar ástæður að baki ferðunum. Það var ekki slæmt efnahagsástand í þeim héruðum sem flestir Íslendingar tóku mormónatrú, í Vestmannaeyjum og Suðurlandi. Það er klárlega ekki verið að leggja í þessa langferð í von um betri veraldleg gæði heldur eru andlegar ástæður að baki," segir hún. Sýningin var fyrst sett upp í Vesturfarasetrinu á Hofsósi árið 2000 en er nú aðlöguð sýningarsölum Þjóðmenningarhússins. Efni sýningarinnar var unnið í samvinnu Vesturfarasetursins og Íslendingafélagsins í Utah. Reykjavíkurborg flutti sýninguna til Reykjavíkur og styrkir borgin jafnframt uppsetningu hennar í Þjóðmenningarhúsinu. Hönnuður sýningarinnar er Árni Páll Jóhannsson og grafískur hönnuður er Áslaug Jónsdóttir.

"Það er líka gaman að því að Þjóðmenningarhúsið taki að sér að opna sýningu sem hefur áður verið úti á landi. Við erum hús allrar þjóðarinnar og ekkert sem segir að allt þurfi að vera fyrst í Reykjavík," segir hún.

Gaman er að greina frá því að Þjóðræknisfélag Íslendinga gengst fyrir ferð til Utah í sumar en þar verða hátíðarhöld í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá því að fyrstu Íslendingarnir settust þar að. "Þjóðræknisfélag Íslendinga er með öfluga starfsemi. Félagið hélt aðalfund hér í húsinu í nóvember síðastliðnum og hundrað manns sóttu hann. Þetta er fimmta árið sem félagið stendur fyrir svona sumarferðum og fólk flykkist í þær hundruðum saman," segir Jóhanna. Sýningin Fyrirheitna landið verður í Þjóðmenningarhúsinu næstu tvö ár og gefst því gott tækifæri til að kynna sér þessa menningu. Jóhanna bendir á að næsta vetur verði tilbúin dagskrá fyrir skólahópa sem vilja koma að kynna sér þennan kafla í Íslandssögunni.

Ávörp við opnunina fluttu auk Davíðs, Almar Grímsson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, David A. Ashby fyrir hönd Íslendingafélagsins í Utah, Andrés Sigurvinsson fyrir hönd bæjarstjórnar Vestmannaeyja, og Valgeir

Sjá nánari upplýsingar um sýninguna á heimasíðu Þjóðmenningarhússins.

The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints Icelandic web-site 

Home

 

Notice: Microsoft has no responsibility for the content featured in this group. Click here for more info.
  Try MSN Internet Software for FREE!
    MSN Home  |  My MSN  |  Hotmail  |  Search
Feedback  |  Help  
  ©2005 Microsoft Corporation. All rights reserved.  Legal  Advertise  MSN Privacy